|
|||
![]() |
|||
2016-12-06 16:51:07 CET 2016-12-06 16:51:07 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Niðurstaða víxlaútboðsLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á tveimur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 170510 og nýjum flokki, LBANK 170612. Heildartilboð í útboðinu voru 28 talsins og námu samtals 4.380 m. kr. Þrettán tilboð að fjárhæð 2.100 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170510 og voru vextir tilboða á bilinu 5,54%-5,80%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.040 m. kr. á 5,63% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,7229. Fimmtán tilboð að fjárhæð 2.280 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170612 og voru vextir tilboða á bilinu 5,50%-5,80%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.720 m. kr. á 5,68% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,2086. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 12. desember 2016. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|