|
|||
![]() |
|||
2013-02-01 17:01:00 CET 2013-02-01 17:01:02 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSkiptigengi í gjaldeyrisútboðiSamkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 21. desember sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 5.febrúar nk. kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 1. febrúar. Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 111,629093 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 8. febrúar 2013 (ávöxtunarkrafa 2,65%).1 Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100). 1Hreint verð (e. clean price) er 105,4. |
|||
|