|
|||
![]() |
|||
2016-03-03 09:52:50 CET 2016-03-03 09:52:50 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar markflokka sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í gær útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 1.000 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,08%. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 720 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,04%. Óverðtryggði flokkurinn ARION CB 22 var stækkaður um 1.540 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,70%. Heildareftirspurn í útboðinu var 3.800 m. kr. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem teknir hafa verið til viðskipta á Nasdaq Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 6. apríl næstkomandi. Það sem af er ári 2016 hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 12.380 m. kr. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 49.540 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|