2008-01-28 11:07:35 CET

2008-01-28 11:07:35 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Seðlabanki Íslands - Fyrirtækjafréttir

- Moody's segir Aaa einkunnir Íslands á krossgötum


Í frétt Moody's sem birt var í morgun segir eftirfarandi í lauslegri þýðingu:  

Aaa lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands eru á krossgötum, samkvæmt nýrri
skýrslu matsfyrirtækisins Moody's Investors Service. Í skýrslunni er ekki
tilkynnt nein breyting lánshæfiseinkunnanna. 

Að áliti Moody's kemur Ísland vel út í samanburði við mörg önnur þróuð iðnríki
sem einnig hafa lánshæfiseinkunnirnar Aaa þegar litið er til lágrar skuldastöðu
hins opinbera á Íslandi, stjórnkerfis sem byggist á sáttaviðleitni og
skilvirkra stofnana. Á móti kemur að íslenska ríkið er hugsanlega berskjaldaðra
gagnvart trúverðugleikabresti (e. confidence crisis) en önnur ríki með
Aaa-einkunnir vegna mikilla alþjóðlegra umsvifa stórra íslenskra
viðskiptabanka. 

„Ísland nýtur hárra tekna á mann og háþróaðra stjórnar-, hag- og
samfélagsstofnana, aldursskipting er hagstæð og lífeyrissjóðir fjármagnaðir að
fullu“, segir sérfræðingur Moody's, Joan Feldbaum-Vidra, sem er höfundur
skýrslunnar. „Hlutfallslega eru skuldir hins opinbera minni en helmingur
meðtalsskulda hins opinberra í ríkjum evrusvæðisins.“ 
 
Þrátt fyrir þetta hefur hið mjög skuldsetta hagkerfi ekki farið varhluta af
aðstæðum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum eins og sést á nýlegri hækkun
vaxtaálaga. Áframhaldandi alþjóðlegur vöxtur bankakerfisins hefur leitt til
þess að ófyrirséðar fjárhagslegar skuldbindingar ríkisins hafa vaxið upp fyrir
það sem æskilegt (e. comfort levels) getur talist. 

Í skýrslu Moody's eru ítarlega skýrðar forsendurnar fyrir Aaa-einkunnum Íslands
og metin er geta stjórnvalda og banka til að standast erfiðar aðstæður. 

„Samkvæmt greiningu Moody's er líklegt að íslensk stjórnvöld geti mætt
lausafjárbresti, varið innstæðueigendur og forðast greiðsluþrengingar jafnvel
við sérstaklega erfið skilyrði (e. even in a quite extreme scenario),“ segir
Feldbaum-Vidra. „Á undanförnum árum hefur Moody's fylgst grannt með vexti
erlendra skuldbindinga bankakerfisins. Að því gæti komið að slíkur vöxtur myndi
reyna á getu stjórnvalda til að takast á við kreppu, að minnsta kosti með hætti
sem samræmdist gildandi Aaa-einkunnum.“ 

Sérfræðingur Moody's segir að auka mætti svigrúm stjórnvalda til að glíma við
áhrif kreppu í framtíðinni með viðameiri reglusetningu um lausafé banka eða með
öðrum kerfisbreytingum sem milduðu hlutverk stjórnvalda sem lánveitanda til
þrautavara í erlendri mynt. 

„Allar slíkar breytingar myndu draga úr fjármálalegri áhættu stjórnvalda” segir
sérfræðingur Moody's.“ 

Skýrslan heitir: Aaa einkunnir Íslands á krossgötum

Nánari upplýsingar veitir Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og
markaðssviðs Seðlabanka Íslands í síma 569-9600. 

iceland sc2008.pdf