|
|||
![]() |
|||
2015-06-26 19:07:07 CEST 2015-06-26 19:08:08 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirUndirritun samninga í tengslum við útgáfu íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaðiFöstudaginn, 26. júní, var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði. Frá 1. júlí 2015 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með Íbúðabréf". Þær eru: Íslandsbanki hf., Arion banki hf., MP banki hf.og Landsbankinn hf . -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Íbúðalánasjóður veitir. -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð, að lágmarki skv. eftirfarandi töflu og að nafnvirði, í hvern flokk Íbúðabréfa í Nasdaq OMX á Íslandi. Flokkur Nafnverð --------------------- HFF150224 80.000.000 --------------------- HFF150434 70.000.000 --------------------- HFF150644 65.000.000 --------------------- -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningnum. -- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 500 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða. Samningurinn gildir frá 1. júlí 2015 til 30. júní 2016. Þóknun til allra aðalmiðlara íbúðabréfa á samningstímanum verður 75milljónir króna fyrir viðskiptavakt á eftirmarkaði. |
|||
|