2009-09-24 18:43:04 CEST

2009-09-24 18:44:04 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
BYR - sparisjóður - Fyrirtækjafréttir

- Byr annast viðbótarlífeyrissparnað SPRON og nb.is - Yfirfærslan er viðskiptavinum að kostnaðarlausu


Byr annast viðbótarlífeyrissparnað SPRON og nb.is
Yfirfærslan er viðskiptavinum að kostnaðarlausu

Fjármálaeftirlitið hefur veitt samþykki fyrir því að Byr sparisjóður verði
vörsluaðili viðbótarlífeyrissparnaðar fyrrum viðskiptavina SPRON og nb.is.
Færist sparnaðurinn sjálfkrafa til Byrs, þeim að kostnaðarlausu, hálfum mánuði
eftir að þeim berst kynningarbréf þess efnis.  Það verður sent út næstu daga. 

Samkvæmt samningi við slitastjórn SPRON og nb.is mun Byr annast ávöxtun á
verðtryggðum sparnaði ásamt þjónustu við viðskiptavini en Íslensk verðbréf (ÍV)
munu sjá um stýringu á verðbréfatengdum eignum.  Slitastjórnin gekk til
samninga við Byr og ÍV að undangengnu útboði. Félagið Íslensk verðbréf var
stofnað árið 1987 og sérhæfir það sig í eignastýringu fyrir fjárfesta, stóra og
smáa. Lífeyrissjóðir eru meðal stærstu viðskiptavina en heildareignir í
stýringu hjá ÍV nema nú um 90 milljörðum króna. 

Eins og áður sagði mun viðbótarlífeyrissparnaður SPRON og nb.is færast
sjálfkrafa til Byrs tveimur vikum eftir að viðskiptavinum berst kynningarbréf
þess efnis nema þeir óski annars. Viðbótarlífeyrissparnaðurinn færist til Byrs,
sjóðsfélögum að kostnaðarlausu. 

Eigendur viðbótarlífeyrissparnaðar SPRON og nb.is geta nú fengið alla þjónustu
vegna sparnaðar síns í heimabanka Byrs. Þeir sem ekki hafa haft aðgang geta
nálgast notandanafn og lykilorð í heimabanka undir rafrænum skjölum.  Þá veita
þjónustufulltrúar útibúa sparisjóðsins allar frekari upplýsingar. 

Nánari upplýsingar:
Atli Örn Jónsson, Byr sparisjóður, S: 575 4000