|
|||
2015-11-03 12:25:02 CET 2015-11-03 12:26:03 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirTilkynning um aukaútdrátt húsbréfa til greiðslu 15. janúar 2016Íbúðalánasjóður hefur, samkvæmt lögum um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, heimild til aukaútdráttar húsbréfa. Þessi heimild er í samræmi við heimild skuldara fasteignaveðbréfa til að greiða aukaafborganir af skuldabréfum sínum eða að endurgreiða skuldina að fullu fyrir gjalddaga. Ákvæði þessa efnis hafa verið í lögum um húsnæðismál allt frá setningu laga nr. 75/1989, sem komu húsbréfakerfinu á fót. Á þessum grundvelli hefur Íbúðalánasjóður látið fara fram aukaútdrátt. Yfirlit um hin útdregnu bréf verður að finna í Lögbirtingablaðinu 15. nóvember n.k. Við útdráttinn var farin sú leið að draga út húsbréf, flokk á móti flokki, á þann veg að dregin hafa verið út húsbréf sem svara beint til uppgreiðslna fasteignaveðbréfa sem skiptanleg voru fyrir húsbréf úr flokknum. Því er fullkomið samræmi milli uppgreiðslna og útdráttar, eins og lögin gera ráð fyrir. Gert er ráð fyrir að aukaútdráttum verði áfram beitt til að jafna sjóðsstreymi Íbúðalánasjóðs vegna uppgreiðslna, í samræmi við tilvitnaðar lagaheimildir. Húsbréf úr eftirtöldum flokkum voru dregin út í þessum aukadrætti og koma til greiðslu 15. janúar 2016: Heiti Nafnverð 3. flokkur 91 IBH16-1015 3.210.000 1. flokkur 92 IBH17-0115 14.200.000 2. flokkur 92 IBH17-0415 13.700.000 1. flokkur 93 IBH18-0415 12.620.000 3. flokkur 93 IBH18-1015 18.300.000 1. flokkur 94 IBH19-0115 42.230.000 1. flokkur 95 IBH20-0115 50.060.000 3. flokkur 96 IBH36-0115 27.750.000 |
|||
|