|
|||
2016-11-16 16:31:01 CET 2016-11-16 16:31:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirUppkaup ríkisbréfa RIKH 18 1009Ákveðið hefur verið að halda ekki útboð á ríkisbréfum föstudaginn 18. nóvember 2016. Þess í stað verða uppkaup kl. 10:30 til 11:00 með tilboðsfyrirkomulagi. Ríkissjóður býðst til að kaupa til baka óverðtryggð bréf í flokknum RIKH 18 1009 sem er með lokagjalddaga 9. október 2018. Tilgangur uppkaupanna er að minnka stærð flokksins sem nú er um 183 ma.kr. og draga þar með úr endurfjármögnunaráhættu ríkissjóðs á lokagjalddaga flokksins. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða getur orðið allt að 10.000 milljónir króna en niðurstaðan verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta þeirra eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast á innsendum verðum (e. multiple price auction method). Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 23. nóvember 2016. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson forstöðumaður Lánamála ríkisins, í síma 569 9633. |
|||
|