|
|||
2009-09-29 10:59:04 CEST 2009-09-29 11:00:05 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirTilkynning um aukna útgáfu ríkissjóðs á innlendum skuldabréfamarkaðiÍ ársbyrjun 2009 var tilkynnt um áætlaða útgáfu ríkisbréfa fyrir um 145 ma.kr. á árinu. Sala ríkisbréfa hefur gengið vel og var markmiði ársáætlunar náð í ágúst sl. Í ljósi eftirspurnar á markaði eftir óverðtryggðum bréfum er stefnt að því að auka við útgáfuna um allt að 60 ma. kr. á árinu, ef markaðsaðstæður leyfa. Andvirði útgáfunnar verður varið til þess að efla sjóðstöðu ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands í síma 569 9600. |
|||
|