|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-07-06 18:51:04 CEST 2017-07-06 18:51:04 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFlutningatölur júní 2017Í júní flutti Icelandair um 488 þúsund farþega og voru þeir 11% fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 11% og sætanýting var 85,4% samanborið við 83,7% á sama tíma í fyrra. Farþegar Air Iceland Connect voru 33 þúsund í júní og fjölgaði um 9% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 11% samanborið við júní 2015. Sætanýting nam 66,8% og jókst um 0,3 prósentustig á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi fjölgaði um 37% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 25% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 5% samanborið við júní í fyrra og herbergjanýting var 80,0% samanborið við 84,5% á síðasta ári. Eftirspurn bókana með skömmum fyrirvara var minni en áætlað var ásamt því að meira var um afbókanir hópa en á sama tíma í fyrra.
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|