2013-08-23 13:46:00 CEST

2013-08-23 13:46:01 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 15 0408 og RIKB 31 0124


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 15 0408 og RIKB 31 0124 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 15 0408:
Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.300 m.kr. að nafnverði. 3
tilboðum var tekið fyrir 700 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,600 (4,09%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 31 0124:
Alls bárust 22 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.000 m.kr. að nafnverði. 18
tilboðum var tekið fyrir 3.200 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 98,600 (6,63%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 27.
ágúst. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 28. ágúst 2013.