2008-09-22 10:58:11 CEST

2008-09-22 10:59:11 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Teymi hf. - Fyrirtækjafréttir

Nýr forstjóri hjá EJS ehf.


Jón Viggó Gunnarsson, forstjóri EJS ehf., dótturfélags Teymis, hefur óskað
eftir því að láta af störfum. Félagið þakkar honum góð störf og óskar
velfarnaðar á nýjum vettvangi. 
Magnús S. Norðdahl hefur verið ráðinn nýr forstjóri EJS ehf. Magnús starfaði á
fyrirtækjasviði Glitnis banka en var áður framkvæmdastjóri rekstrarlausna
Nýherja hf. og forstjóri Aco-Tæknivals hf.