2011-03-11 10:47:46 CET

2011-03-11 10:48:46 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður - Vaxtaákvörðun



Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari
breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og
íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón
af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. 

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem
haldið var 10. mars s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,48%. 

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,45%, vegna útlánaáhættu 0,45% og vegna
uppgreiðsluáhættu 0,50%. 

Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að lækka
útlánavexti sjóðsins sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með
uppgreiðsluákvæði verða 4,40% og 4,90% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin
nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 11. mars 2011.