|
|||
![]() |
|||
2017-07-05 19:17:55 CEST 2017-07-05 19:17:55 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa. Heildareftirspurn í útboðinu var 4.860 m. kr. og fjöldi tilboða var 7. Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 5 tilboð að nafnvirði samtals 4.820 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,91% - 2,97%. Samþykkt voru tilboð í ARION CBI 25 að fjárhæð 4.620 m.kr. á 2,96% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 10.240 m.kr. eftir útgáfuna. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 19 bárust 2 tilboð að nafnvirði samtals 40 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,06%–5,09%. Öllum tilboðum í ARION CB 19 var hafnað að þessu sinni. Engin tilboð bárust í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem hafa verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 12. júlí 2017 Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 2. ágúst næstkomandi. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 78.260 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Kristín Erla Jónsdóttir, Fjármögnun Arion banka, kristin.erla.jonsdottir@arionbanki.is, s: 444 6272. |
|||
|