|
|||
2014-05-06 11:28:00 CEST 2014-05-06 11:29:01 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirÁætlað tap vegna verkfalls flugmannaÁætlað tap Icelandair Group vegna boðaðs verkfalls Félags íslenskra atvinnuflugmanna nemur um 13-15 milljónum dollara eða um 1,5-1,7 millljarði króna, ef verkfallið varir allan þann tíma sem það hefur verið boðað. Í fjárhæðinni eru áætlaðar tapaðar tekjur að frádregnum sparnaði vegna niðurfelldra fluga auk beins áætlaðs kostnaðar vegna aðstoðar við farþega. Í fjárhæðinni eru hvorki hugsanleg áhrif yfirvinnubanns né áhrif verkfallsins á bókanir og tekjur félagsins á þeim dögum sem verkfallið stendur ekki yfir. Jafnframt er ekki tekið tillit til hugsanlegra langtímaáhrifa verkfallsins á Icelandair Group og Ísland almennt sem áfangastaðar fyrir ferðamenn. Frekari upplýsingar: Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála bogi@icelandairgroup.is 665 8801 Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla iris@icelandairgroup.is 840 7010 |
|||
|