2017-02-15 11:42:30 CET

2017-02-15 11:42:30 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf. : Leiðrétting - Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa - frétt birt: 2017-02-14 16:48:59


Leiðrétting: Fjárhæð tekinna tilboða í flokki LBANK CBI 28 leiðrétt.

Landsbankinn  lauk í dag  útboði sértryggðra skuldabréfa  þar sem fjórir flokkar
voru boðnir til sölu.

Heildartilboð  í  útboðinu  voru  24 talsins  og  námu  samtals  3.320 m. kr. að
nafnverði.

Tvö  tilboð að fjárhæð 500 m.  kr. að nafnverði bárust  í flokkinn LBANK CB 19 á
ávöxtunarkröfu   5,39%. Öllum   tilboðum   í   flokkinn   var   tekið  á  5,39%
ávöxtunarkröfu.     Heildarstærð    flokksins    verður    15.000 m.kr.    eftir
viðbótarútgáfuna.

Níu  tilboð að fjárhæð 1.320 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á
ávöxtunarkröfu  á  bilinu  5,43%-5,50%. Öllum  tilboðum  í  flokkinn var tekið á
5,50% ávöxtunarkröfu.   Heildarstærð   flokksins    verður   3.420 m.kr.   eftir
viðbótarútgáfuna.

Sjö  tilboð að fjárhæð 980 m. kr. að  nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 22 á
ávöxtunarkröfu  á  bilinu  3,29%-3,34%. Tilboðum  að  fjárhæð  380m var  tekið á
ávöxtunarkröfunni   3,30%. Heildarstærð   flokksins  verður  19.720 m.kr.  eftir
viðbótarútgáfuna.

Sex  tilboð að fjárhæð 520 m. kr. að  nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á
ávöxtunarkröfu  á  bilinu  3,03%-3,08%. Tilboðum  að  fjárhæð  480m var  tekið á
ávöxtunarkröfunni   3,07%. Heildarstærð   flokksins   verður  4.220 m.kr.  eftir
viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 21. febrúar
2017. Arion  banki,  Íslandsbanki  og  Kvika  sinna viðskiptavakt með sértryggða
skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan
í  lög nr. 11/2008 og reglur  Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar
um  skuldabréfin og  tryggingasafnið má  finna á  vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.


[]