2008-04-04 17:54:17 CEST

2008-04-04 17:55:15 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandic Group hf. - Fyrirtækjafréttir

- Icelandic Group hf. hyggst kanna möguleika á afskráningu


Stjórn Icelandic Group hf. hefur auglýst aðalfund félagsins og verður hann
haldinn þann 18. apríl n.k. klukkan 16:00 í Súlnasal Radisson SAS, Hótel Sögu.
Meðal tillagna stjórnar Icelandic Group hf. er að leggja það til að hluthafar
veiti stjórn félagsins heimild til að óska eftir afskráningu hlutabréfa
félagsins úr kauphöll Nasdaq OMX á Íslandi. 

Icelandic Group hf. hefur að mati stjórnar félagsins undanfarin ár ekki náð að
nýta sér kosti þess að vera skráð félag. Þannig hafa fá viðskipti verið með
bréf félagsins, verðmyndun óskilvirk, auk þess sem dreifing hlutafjár er lítil
og undir viðmiðum kauphallar Nasdaq OMX á Íslandi. 

Unnið hefur verið að fjárhagslegri endurskipulagningu og hagræðingu í rekstri
Icelandic Group hf. um nokkurt skeið og verður svo áfram. Útgáfa skuldabréfs
með breytirétti er liður í þessari fjárhagslegu endurskipulagningu og mun hún
gera félaginu kleift að vinna að sínum markmiðum. Í ljósi þess að skráning í
kauphöll getur verið íþyngjandi, m.a. vegna upplýsingaskyldu sem getur skekkt
stöðu gagnvart óskráðum samkeppnisaðilum og að Icelandic Group hf. er ekki sem
skyldi að njóta góðs af kostum skráningar, telur stjórn félagsins að hér sé um
skynsamlega ráðstöfun að ræða sem sé félaginu og hluthöfum þess til hagsbóta. 

Nánari upplýsingar veitir: 
Finnbogi A. Baldvinsson forstjóri Icelandic Group S: +49 1723 198 727