|
|||
![]() |
|||
2016-09-05 19:16:20 CEST 2016-09-05 19:16:20 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirMoody‘s hækkar lánshæfiseinkunn ORReykjavík, 2016-09-05 19:15 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Matsfyrirtækið Moody‘s hefur hækkað lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur í Ba2 með stöðugum horfum. Í rökstuðningi fyrirtækisins kemur fram að bætt einkunn endurspegli framfarir OR hvað varðar styrkari fjárhag þess og traustari lausafjárstöðu. Þetta gerist á sama tíma og efnahagsumhverfið á Íslandi og markaðsaðstæður hafi batnað. Jafnframt er tekið fram í viðhengdri tilkynningu Moody‘s að matsfyrirtækið eigi von á því að OR muni halda fjárhagslegum styrk sínum og góðri lausafjárstöðu. Nánari upplýsingar: Ingvar Stefánsson framkvæmdastjóri Fjármála OR 516 6100 |
|||
|