|
|||
2009-12-09 17:55:20 CET 2009-12-09 17:55:20 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSala íbúðabréfa og ríkisbréfaFimmtudaginn 10. desember fer fram útboð á ríkisbréfum sem lögð voru fram til tryggingar verðbréfalánum sem ríkissjóður yfirtók. Hér er um að ræða sölu á síðustu bréfum í fjórum flokkum íbúðabréfa og tveimur flokkum ríkisbréfa samtals að andvirði tæplega 28 ma.kr. að nafnverði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast kaupendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Í boði er eftirfarandi flokkur að nafnverði: Flokkur Nafnverð RIKB 13 0517 1,1 ma.kr. Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Tilboð skulu sendast til Seðlabankans í gegnum Bloomberg-útboðskerfið milli kl. 09:30 og 10:00. Tilboð skulu sett fram í verðum, með þremur aukastöfum Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Niðurstaða verður birt kl. 11:00. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagur 14. desember 2009. |
|||
|