|
|||
2017-06-06 18:15:38 CEST 2017-06-06 18:15:38 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðsLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 171110 og nýjum flokkum, LBANK 171211 og LBANK 180611. Heildartilboð í útboðinu voru 25 talsins og námu samtals 4.980 m. kr. Sjö tilboð að fjárhæð 800 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 171110 og voru vextir tilboða á bilinu 4,90%-5,15%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Þrettán tilboð að fjárhæð 2.920 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 171211 og voru vextir tilboða á bilinu 4,90%-5,15%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.900 m. kr. á 4,98% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,5178. Fimm tilboð að fjárhæð 1.260 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180611 og voru vextir tilboða á bilinu 5,09%-5,20%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 12. júní 2017. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|