2017-03-05 18:40:53 CET

2017-03-05 18:40:53 CET


Anglų Islandų
Marel hf. - Viðskipti stjórnenda

Marel hf. - Veiting kauprétta


Stjórn Marel hf. ákvað þann 5. mars 2017 að veita framkvæmdastjórn félagsins
kauprétti að allt að 3,2 milljónum hluta í félaginu. 

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins
til lengri tíma. Meginefni nýja kaupréttarkerfisins var samþykkt á aðalfundi
Marel sem haldinn var 2. mars 2017, í samræmi við starfskjarastefnu félagsins
sem samþykkt var á sama fundi. Sex meðlimir framkvæmdastjórnar Marel fá sama
magn kauprétta eða 200 þúsund hluti, þá fá yfirmenn alifugla- og kjötiðnaða 300
þúsund hluti, fjármálastjóri og yfirmaður stefnumótunar og þróunar fá 400
þúsund hluti og forstjóri fær 600 þúsund hluti. 

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  -- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 2,779 á hlut [1].
     Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá
     útgáfudegi kaupréttanna.
  -- Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að
     nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu
     ársfjórðungsuppgjöra. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast þegar eftir
     birtingu fyrsta ársfjórðungsuppgjörs ársins 2020. Kaupréttarhafar geta
     frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2021, þegar samningarnir
     renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  -- Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir því sem nemur
     fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum þegar skattar hafa verið dregnir
     frá, og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum
sínum nemur nú alls 11,8 milljónum evra, sem nemur um 1,6% hlutafjár í
félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður
félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 1,7
milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes. 

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:



Nafn      Staða                Nýr      Áður           Hlutafjár  Hlutafjáreign 
                                kaupré   úthlutaður,   eign        fjárhagslega 
                               ttur      ónýttur        innherja   tengdra aðila
                                         kaupréttur                             
Árni      Forstjóri            600.000        360.000     64.634          67.235
 Oddur                                                                          
 Þórðars                                                                        
on                                                                              
                                                                                
Linda     Fjármálastjóri       400.000        725.000     62.500               0
 Jónsdót                                                                        
tir                                                                             
                                                                                
Árni      Yfirmaður            400.000        605.000          0         100.000
 Sigurðs   stefnumótunar og                                                     
son        þróunar                                                              
                                                                                
Anton de  Yfirmaður            300.000        731.000          0               0
 Weerd     alifuglaiðnaðar                                                      
                                                                                
David     Yfirmaður            300.000        689.000     27.300               0
 Wilson    kjötiðnaðar                                                          
                                                                                
Sigurður  Yfirmaður            200.000        605.000          0               0
 Ólason    fiskiðnaðar                                                          
                                                                                
Jesper    Yfirmaður frekari    200.000         12.000          0               0
 Hjortsh   vinnslu                                                              
øj                                                                              
                                                                                
Davíð     Yfirmaður            200.000        665.000     75.000               0
 Freyr     mannauðsmála                                                         
 Oddsson                                                                        
                                                                                
Paul van  Yfirmaður            200.000        665.000          0               0
 Warmerd   alþjóðlegrar                                                         
am         framleiðslu- og                                                      
           aðfangastýringar                                                     
                                                                                
Pétur     Yfirmaður            200.000        920.000    219.430               0
 Guðjóns   viðskipta- og                                                        
son        sölusviðs                                                            
                                                                                
Viðar     Yfirmaður            200.000        725.000          0               0
 Erlings   alþjóðlegrar                                                         
son        nýsköpunar og                                                        
           þróunar                                                              





 [1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á
NASDAQ OMX Iceland hf. þann 3. mars 2017, þ.e. ISK 314,00 á hlut, umreiknað með
miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 113,00