2017-03-06 16:31:14 CET

2017-03-06 16:31:14 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Flutningatölur febrúar 2017


Í febrúar flutti Icelandair rúmlega 200 þúsund farþega og voru þeir 11% fleiri
en í febrúar á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 18% og sætanýting
var 75,9% samanborið við 79,0% í sama mánuði í fyrra. Farþegar Flugfélags
Íslands voru tæplega 23 þúsund í febrúar og fjölgaði um 2% á milli ára. Framboð
félagsins var aukið um 29% samanborið við febrúar 2016 og skýrist það af flugi
til Aberdeen sem flogið er í samstarfi við Icelandair og hófst í mars 2016.
Sætanýting nam 68,2%. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli ára.
Fraktflutningar drógust saman um 13% frá því á síðasta ári. Skýrist það af
verkfalli sjómanna á Íslandi sem hefur haft í för með sér samdrátt í
útflutningi á fiski.  Herbergjanýting á hótelum félagsins jókst á milli ára var
85,6% samanborið við 84,0% í fyrra. 



ICELANDAIR           FEB 17   FEB 16      BR. (%)   ÁTÞ 17   ÁTÞ 16      BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega      200.304  180.749          11%  406.038  354.574          15%
Sætanýting            75,9%    79,0%  -3,1 %-stig    74,7%    76,6%  -1,9 %-stig
Framboðnir            772,8    652,7          18%  1.628,0  1.353,7          20%
 sætiskm.                                                                       
 (ASK'000.000)                                                                  
                                                                                
FLUGFÉLAG íSLANDS    FEB 17   FEB 16      BR. (%)   ÁTÞ 17   ÁTÞ 16      BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega       22.543   22.044           2%   42.819   42.443           1%
Sætanýting            68,2%    77,7%  -9,5 %-stig    65,4%    73,8%  -8,5 %-stig
Framboðnir             11,3      8,8          29%     22,4     17,8          26%
 sætiskm.                                                                       
 (ASK'000.000)                                                                  
                                                                                
LEIGUFLUG            FEB 17   FEB 16      BR. (%)   ÁTÞ 17   ÁTÞ 16      BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Flugvélanýting       100,0%   100,0%   0,0 %-stig    94,4%    98,0%  -3,6 %-stig
Seldir blokktímar     1.871    2.022          -7%    3.718    4.170         -11%
                                                                                
FRAKTFLUTNINGAR      FEB 17   FEB 16      BR. (%)   ÁTÞ 17   ÁTÞ 16      BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Seldir tonnkm.        7.525    8.661         -13%   14.922   17.291         -14%
 (FTK´000)                                                                      
                                                                                
HÓTEL                FEB 17   FEB 16      BR. (%)   ÁTÞ 17   ÁTÞ 16      BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Framboðnar           25.116   22.765          10%   52.923   47.100          12%
 gistinætur                                                                     
Seldar gistinætur    21.511   19.117          13%   40.745   33.899          20%
Herbergjanýting       85,6%    84,0%   1,7 %-stig    77,0%    72,0%   5,0 %-stig



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010