|
|||
![]() |
|||
2008-01-31 18:15:25 CET 2008-01-31 18:15:25 CET REGULATED INFORMATION Exista hf. - Ársskýrsla/ársreikningurAfkoma Exista á árinu 2007Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista birti í dag uppgjör fyrir árið 2007. Helstu niðurstöður fyrir árið 2007 • Hagnaður eftir skatta 573,9 milljónir evra (ISK 50 milljarðar) og jókst um 34.5% • Hagnaður á hlut 5,11 evrur (ISK 448) og jókst um 18.8% • Arðsemi eigin fjár var 23% á ársgrundvelli • Heildareignir námu 8 milljörðum evra (ISK 731 milljarði) í lok 2007 og jukust um 82% á árinu • Eigið fé var 2,4 milljarðar evra (ISK 216 milljarðar) og jókst um 25% • Eiginfjárhlutfall var 29,6% í lok tímabilsins Afkoma á síðasta ársfjórðungi • Afkoma eftir skatta var neikvæð um 295,6 milljónir evra (ISK 26 milljarðar) • Miklar sviptingar á fjármálamörkuðum höfðu veruleg áhrif á virði eigna. • Umtalsverður einskiptiskostnaður féll til við það að starfsemi á sviði eigin viðskipta og stöðutöku var lögð niður og eignasöfn seld Frá áramótum: • Í lok janúar 2008 hafði Exista aðgang að tryggu lausafé sem nemur endurfjármögnunarþörf félagsins vel fram til ársins 2009, eða í 69 vikur. • Exista kynnir í dag breytingar á skipulagi félagsins. Markmið breytinganna er að undirstrika enn frekar fjármálaþjónustu sem kjarnastarfsemi félagsins. Tvö ný stoðsvið, Rannsóknir og Fjárstýring, hafa verið sett á laggirnar, en eigin viðskipti hafa verið lögð niður. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður: „Á tímum mikilla sviptinga á fjármálamörkuðum nýtur Exista góðs af traustum rekstri dótturfélaga og hlutdeildarfélaga. Óvenjulega skarpt verðfall á mörkuðum hefur reynt á undirstöður félagsins og hefur Exista sýnt mikinn styrk við þær aðstæður. Við erum undir það búin að takast á við ytri sveiflur og högum rekstri félagsins og áhættustýringu í samræmi við það. Lausafjárstaða er mjög góð og undirstöður eru traustar. Stjórnendur félagsins gera sér grein fyrir að hluthafar okkar hafa fundið fyrir miklum sveiflum í verði hlutabréfa að undanförnu, eins og reyndar fjárfestar víða um heim. Hins vegar teljum við að Exista hafi skapað sér afar athyglisverða stöðu á norrænum fjármálamarkaði sem feli í sér mikil tækifæri fyrir félagið til framtíðar.“ Frekari upplýsingar um reikninga félagsins veitir: Sigurður Nordal framkvæmdastjóri samskiptasviðs sími: 550 8620 (ir@exista.com) Um Exista Exista hf. starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum vátrygginga og eignaleigu, meðal annars undir merkjum VÍS, Lífís og Lýsingar. Exista er jafnframt alþjóðlegur fjárfestir og meðal annars kjölfestueigandi í Sampo Group, Kaupþingi banka, Bakkavör Group, Storebrand og Skiptum. Markmið Exista er að nýta fjárhagslegan styrk sinn til uppbyggingar á starfsemi sinni hér á landi og erlendis. Upplýsingar um Exista hf. og uppgjörið er að finna á vefsíðu félagsins, www.exista.com |
|||
|