|
|||
![]() |
|||
2016-08-22 19:24:29 CEST 2016-08-22 19:24:29 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Íslandsbanki hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Islandsbanki hf. : Afkoma fyrri árshelmings 2016Helstu niðurstöður fyrri árshelmings 2016: * Hagnaður bankans eftir skatta var 13,0 ma. kr. á fyrri árshelmingi ársins 2016 samanborið við 10,8 ma. kr. á sama tímabili 2015. Afkoman skýrist af sterkum grunntekjum og einskiptishagnaðar vegna sölu Borgunar á hlutabréfum í Visa Europe * Arðsemi eigin fjár var 12,9% samanborið við 11,7% á sama tímabili 2015 * Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 8,0 ma. kr., samanborið við 8,2 ma. kr. á 1H15. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 14% eiginfjárhlutfall A var 11,9% samanborið við 13,9% á sama tímabili 2015. * Hreinar vaxtatekjur voru 15,9 ma. kr. (1H15: 13,6 ma. kr.) sem er aukning um 17,3%. Vaxtamunur var 3,1% (1H15: 2,9%). * Hreinar þóknanatekjur voru 6,7 ma. kr. (1H15: 6,4 ma. kr.) eða 4,3% aukning milli ára.; þar af var 1,3% aukning hjá móðurfélaginu * Um 1,2 milljarða einskiptiskostnaður var vegna skemmda á núverandi höfuðstöðvum bankans á Kirkjusandi * Kostnaðarhlutfall var 56,0% (1H15: 56,0%), að undanskildum sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki og einskiptiskostnaði * Útlán til viðskiptavina jukust um 5,0% frá áramótum eða í 698,7 ma. kr. á fyrri árshelmingi 2016. Aukningin dreifist vel á mismunandi útlánaeiningar bankans * Heildareignir voru 1.030 ma. kr. í lok tímabilsins (mar16: 1.021ma. kr.) * Innlán frá viðskiptavinum lækkuðu um 4,6% á fyrri árshelmingi 2016 og voru 566 ma. kr. í lok tímabilsins * Bankinn gaf út tvær skuldabréfaútgáfur í erlendri mynt á fyrri helmingi ársins, 35 milljónir dollara í janúar og stækkaði evru skuldabréfaútgáfu um 75 milljón evra í maí * Eiginfjárhlutfall er sterkt, var 28,9% í lok júní (mars16: 29,7%) og eiginfjárhlutfall A (CET1) var 27,1% (mars16: 28,1%) Helstu niðurstöður annars ársfjórðungs 2016 * Hagnaður bankans eftir skatta var 9,5 ma. kr. á 2F16 (2F15: 5,4 ma. kr.) * Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 14% eiginfjárhlutfall A var 13,9% á fjórðunginum (2F15: 12,8%) * Hreinar vaxtatekjur voru 8,4 ma. kr. á öðrum ársfjórðungi (2F15: 7,4 ma. kr.) * Hreinar þóknanatekjur voru 3,5 ma. kr. á öðrum ársfjórðungi (2F15: 3,5 ma. kr.) Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: "Afkoma Íslandsbanka á fyrri árshelmingi var góð og staða bankans sterk. Hagnaður tímabilsins var um 13 milljarðar og arðsemi eiginfjár 12,9%. Aukning hagnaðar skýrist að miklu leyti af tekjum frá dótturfélagi bankans, Borgun. Útlánavöxtur nemur 5% á fyrstu sex mánuðum ársins og hafa lánveitingar verið til fjölbreyttra atvinnugreina. Einföldun á útibúaneti bankans heldur áfram og verða útibúin samtals 14 í upphafi árs 2017. Íslandsbanki rekur hagkvæmasta útibúanet landsins og hefur gert um áraraðir. Samkvæmt nýrri þjónustukönnun hefur ánægja viðskiptavina aldrei mælst hærri og hækka allir þjónustuþættir frá fyrra ári. Bankinn var jafnframt valinn besti bankinn á Íslandi af alþjóðlega fjármálatímaritinu Euromoney fjórða árið í röð. Þetta staðfestir að framtíðarsýn bankans um að veita bestu bankaþjónustu á Íslandi er að skila góðum árangri, bæði í rekstrarafkomu og ánægju viðskiptavina. Ánægjuleg tíðindi berast nú af losun hafta sem er heillavænlegt fyrir íslenskt efnahagslíf. Íslandsbanki er vel undirbúinn fyrir losun hafta og er lausa- og eiginfjárstaða bankans mjög sterk. Eignastýringarþjónusta bankans, VÍB, hefur í áraraðir verið í samstarfi við nokkra af öflugustu eignastýringaraðilum heims.VÍB mun halda áfram sínu öfluga fræðslustarfi um erlenda markaði og aðstoða sparifjáreigendur við dreifingu á sparifé og draga þannig úr áhættu." Afkomufundur á íslensku Þriðjudaginn 23. ágúst kl. 11.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi. Skrá mig á fjárfestafund á Kirkjusandi. Símafundur á ensku Á þriðjudaginn verður markaðsaðilum einnig boðið upp á símafund kl. 10.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn. Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl. Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#2036595] |
|||
|