|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2022-10-03 09:00:00 CEST 2022-10-03 09:00:00 CEST REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsEimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 39. viku 2022 keypti Eimskip 251.336 eigin hluti fyrir kr. 124.961.968 samkvæmt neðangreindu:
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í kauphöll þann 18. ágúst 2022. Eimskip átti 2.915.935 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 3.167.271 hluti sem nemur 1,83% af heildarhlutafé félagsins. Eimskip hefur keypt samtals 1.405.967 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 82,70% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð er samtals kr. 786.080.733 sem nemur 78,61% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 1.700.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en kr. 1.000.000.000. Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 17. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|