|
|||
![]() |
|||
2016-05-18 11:06:22 CEST 2016-05-18 11:06:22 CEST SÄÄNNELTY TIETO Eimskipafélag Íslands hf. - FyrirtækjafréttirEimskip undirritar viljayfirlýsingu við Royal Arctic Line A/SEimskip og Royal Arctic Line A/S hafa undirritað viljayfirlýsingu um að tengja Grænland við alþjóðlegt siglingakerfi Eimskips með samningi um samnýtingu á plássi í siglingakerfum sem tengir Grænland á heimsvísu. Gert er ráð fyrir að fyrirtækin vinni saman með samnýtingu á plássi í stærri skipum sem mun auka hagkvæmni og áreiðanleika. Félögin munu fjárfesta í og reka gámaskip sem verða hönnuð og smíðuð fyrir sérstakar veðuraðstæður á Norður-Atlantshafi og Norðurheimskautssvæðinu, í samræmi við alþjóðlegar reglur um siglingar skipa um svæðið. Nýju skipin verða hönnuð með tilliti til betri eldsneytisnýtingar og verða því umhverfisvænni. Nýju skipunum verður ætlað að tengja flutningakerfi Grænlands og Íslands við Skandinavíu, Evrópu og Norður-Ameríku. Endanlegt samkomulag um samstarf er háð samþykki stjórna fyrirtækjanna og viðeigandi yfirvalda. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips „Fyrirhugaðar stækkanir á höfnunum í Nuuk, Reykjavík og Þórshöfn gefa færi á þjónustu stærri skipa á markaðssvæðinu. Sameining á flutningsmagni Eimskips og Royal Arctic Line og notkun á færri og stærri skipum leiðir til aukinnar hagkvæmni. Samstarfið er mikilvægt skref í að endurnýja og byggja upp skipaflota Eimskips og það eykur umsvif félagsins á Norður-Atlantshafi. Samstarfið mun einnig án nokkurs vafa leiða af sér aukin viðskipti milli landanna hér á okkar heimamarkaði.“ Verner Hammeken, forstjóri Royal Arctic Line „Samkomulagið er mikilvægt skref í að tengja Grænland við alþjóðlega markaði. Það skapar tækifæri fyrir útflytjendur, gefur færi á frekari vinnslu afurða á Grænlandi áður en þær eru fluttar beint til áfangastaða um allan heim með hagkvæmari hætti. Einnig felur þetta í sér mikilvæg tækifæri fyrir innflytjendur til að flytja vörur beint frá nýjum markaðssvæðum í stað þess að þurfa að fara í gegnum Danmörku. Við sjáum nú aukin tækifæri og hagkvæmni til framtíðar og auðveldari flutninga sem mun auðvelda viðskipti við Grænland.“ Um Royal Arctic Line Royal Arctic Line A/S var stofnað árið 1993 og er að fullu í eigu grænlensku landssjórnarinnar. Landsstjórnin hefur veitt Royal Arctic Line A/S sérleyfi til að annast vöruflutninga á sjó til og frá Grænlandi ásamt flutningum á landi. Þetta hefur gert félagið að fjöreggi grænlensks samfélags. Royal Arctic Line annast einnig rekstur 13 hafna á Grænlandi. Um Eimskip Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 57 starfsstöðvar í 19 löndum, er með 20 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.580 starfsmönnum. Um helmingur tekna Eimskips kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun. Eimskip hefur verið umboðsaðili Royal Arctic Line á Íslandi frá árinu 1993. Samstarfið hefur nýlega verið aukið með því að TVG-Zimsen, dótturfélagi Eimskips, hefur verið falið að annast flutningsmiðlun á flugi og akstri fyrir Royal Arctic Line í Evrópu. |
|||
|