|
|||
![]() |
|||
2016-02-08 09:58:01 CET 2016-02-08 09:58:01 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirFlutningatölur janúar 2016Í janúar nam fjöldi farþega í millilandaflugi 173 þúsund og jókst um 15% miðað við janúar á síðasta ári. Framboð í millilandaflugi var aukið um 19%. Sætanýting var 74,2% samanborið við 76,7% í janúar í fyrra. Sætanýting var mjög góð á árinu 2015 og var um met að ræða í öllum mánuðum ársins. Ekki er gert ráð fyrir að sætanýtingin muni aukast í hverjum mánuði árið 2016 líkt og hún gerði á milli áranna 2014 og 2015. Sætanýtingin nú er sú önnur hæsta frá upphafi í janúar. Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 20 þúsund í janúar og fjölgaði um 4%. Framboð í janúar var 1% meira en í janúar á síðasta ári og sætanýting var 69,9% og jókst um 2,5 prósentustig. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 29% fleiri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um 11% á milli ára. Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 6% á milli ára. Herbergjanýting var 60,7% og 6,4 prósentustigum lægri en í janúar 2015. MILLILANDAFLUG JAN 16 JAN 15 BR. (%) ------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 173.549 150.316 15% Sætanýting 74,2% 76,7% -2,5 ppt Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 701,0 590,3 19% INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG JAN 16 JAN 15 BR. (%) ------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 20.385 19.637 4% Sætanýting 69,9% 67,4% 2,5 ppt Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 9,1 9,1 1% LEIGUFLUG JAN 16 JAN 15 BR. (%) ------------------------------------------------------------- Flugvélanýting 100,0% 87,5% 12,5 ppt Seldir blokktímar 2.148 1.668 29% FRAKTFLUTNINGAR JAN 16 JAN 15 BR. (%) ------------------------------------------------------------- Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 17.298 15.043 15% Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.630 7.755 11% HÓTEL JAN 16 JAN 15 BR. (%) ------------------------------------------------------------- Framboðnar gistinætur 24.335 22.909 6% Seldar gistinætur 14.782 15.391 -4% Herbergjanýting 60,7% 67,2% -6,4 ppt Nánari upplýsingar veita: Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010 |
|||
|