|
|||
![]() |
|||
2015-07-24 22:21:38 CEST 2015-07-24 22:22:39 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirFitch Ratings hækkar lánshæfismat ríkissjóðsAlþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur hækkað lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í BBB+ frá BBB og hækkað lánshæfismatið fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt í A- frá BBB+. Matsfyrirtækið hefur einnig hækkað lánshæfismatið fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt í F2 frá F3 og hækkað landseinkunnina (e. Country Ceiling) í BBB+ frá BBB. Horfur fyrir lánshæfismat á langtímaskuldbindingum eru stöðugar. Skýrslur Fitch eru meðfylgjandi. |
|||
|