|
|||
2010-02-16 16:43:50 CET 2010-02-16 16:44:50 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612 - Skiptiútboð -Föstudaginn 19. febrúar kl. 14:00 fer fram útboð með tilboðsfyrirkomulagi hjá Lánamálum ríkisins. Í þessu útboði verða seld bréf í RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 24. febrúar 2010. SKIPTIÚTBOÐ Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612 með sölu á RIKB 10 0317, sem fellur á gjalddaga 17. mars nk. Lánamál ríkisins kaupir RIKB 10 0317 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 99,92 (106,51726 með áföllum vöxtum) m.v. uppgjör 24. febrúar 2010. Þetta verð jafngildir 7,88% í flötum vöxtum. Andvirði bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum. Fjárfestar sem eiga bréf í RIKB 10 0317 og hafa áhuga á að endurfjárfesta í öðrum ríkisbréfum eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í þessu útboði með því að hafa samband við næsta banka. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9633. |
|||
|