2024-09-17 20:47:39 CEST

2024-09-17 20:47:39 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveitan | Útboð á grænum skuldabréfum 25. september


Orkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 25. september 2024. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR0280845 GB og OR180255 GB ásamt nýjum grænum óverðtryggðum skuldabréfaflokki OR031033 GB.

OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Ekki hafa verið gefin út bréf í flokknum áður.

OR280845 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 28. ágúst 2045. Flokkurinn ber 3,70% fasta vexti og er uppgreiðanlegur að 13 árum liðnum. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 2.050 m.kr. í flokknum.

OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 35.246 m.kr. í flokknum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 miðvikudaginn 25. september 2024. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 2. október 2024.


Nánari upplýsingar veita: 

Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is             
Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is