|
|||
![]() |
|||
2012-05-03 18:00:00 CEST 2012-05-03 18:00:04 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSkiptigengi í gjaldeyrisútboðiÍ tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 17. apríl sl. kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki „RIKS 33 0321“ yrði birt í lok dags 3. maí. Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 102,090153 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 11. maí 2012 (krafa 3,00%).1 Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100). 1 Hreint verð (e. clean price) er 100,00. |
|||
|