2017-02-08 19:13:42 CET

2017-02-08 19:13:42 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Ársreikningur

Marel kynnir afkomu fjórða ársfjórðungs 2016


(Allar upphæðir í evrum)


Fjórði ársfjórðungur 2016 – Metfjórðungur í nýjum verkefnum um heim allan

  --  Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2016 námu 250 milljónum evra [4F 2015:
     201,9m]. Pro forma tekjur á fjórða ársfjórðungi 2015 námu 248,8 milljónum
     evra.
  --  EBITDA á fjórða ársfjórðungi 2016 var 47,3 milljónir evra sem er 18,9% af
     tekjum [4F 2015: Leiðrétt EBITDA** 30,0m, 14,9% af tekjum]. Pro forma
     leiðrétt EBITDA** á fjórða ársfjórðungi 2015 nam 37,9 milljónum evra eða
     15,2% af tekjum.
  --  EBIT* á fjórða ársfjórðungi 2016 var 35,1 milljónir evra, sem er 14,0% af
     tekjum [4F 2015: Leiðréttur rekstrarhagnaður EBIT** 22,2m, 11,0% af
     tekjum]. Pro forma leiðrétt EBIT** á fjórða ársfjórðungi 2015 nam 34,9
     milljónum evra eða 14,0% af tekjum.
  --  Hagnaður fjórða ársfjórðungs 2016 nam 22,6 milljónum evra [4F 2015:
     9,9m]. Hagnaður á hlut var 3,15 evru sent [4F 2015: 1,40 evru sent].
  --  Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 74,3 milljónum
     evra á fjórða ársfjórðungi 2016 [4F 2015: 26,9m]. Skuldahlutfall (nettó
     skuldir/EBITDA) í lok fjórða ársfjórðungs 2016 er x2,25.
  --  Pantanabókin stóð í 349,5 milljónum evra við lok fjórða ársfjórðungs 2016
     samanborið við 305,1 milljónir evra í lok þriðja ársfjórðungs 2016 [4F
     2015: 180,1m]. Pro forma pantanabók við lok fjórða ársfjórðungs 2015 var
     319,8 milljónir evra.


Árið 2016 – Góð rekstrarniðurstaða með 14,6% EBIT*


  --  Pro forma tekjur ársins 2016 námu 983,0 milljónum evra [Pro forma tekjur
     2015: 975,8m]. Tekjur ársins 2016 námu 969,7 milljónum evra en 818,6
     milljónum evra árið 2015.
  --  Pro forma EBITDA var 179,7 milljónir evra sem er 18,3% af tekjum [Pro
     forma 2015 leiðrétt EBIT-DA**: 175,7m, eða 18,0% af tekjum]. EBITDA fyrir
     árið 2016 var 175,4 milljónir evra (18.1% af tekjum) borið saman við
     leiðrétt EBITDA** 2015 sem nam 135,8 milljónum evra eða 16,6% af tekjum.
  --  Pro forma EBIT* 2016 var 143,5 milljónir evra sem er 14,6% af tekjum [Pro
     forma 2015 leiðréttur rekstrarhagnaður EBIT** 133,7m eða 13,7% af tekjum].
     Leiðrétt EBIT** fyrir 2016 nam 139,4 milljónum evra (14.4% af tekjum) en
     nam 99,9 milljónum evra árið 2015 (12,2% af tekjum).
  --  Hagnaður ársins 2016 nam 75,8 milljónum evra [2015: 56,7m]. Hagnaður á
     hlut nam 10,59 evru sentum en 7,93 evru sentum árið 2015.
  -- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 179,0 milljónum
     evra [2015: 119,7m]. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok ársins 2016 námu
     403,6 milljónum evra, en 142,8 milljónum evra í lok ársins 2015.



Mótteknar pantanir á fjórða ársfjórðungi 2016 nema 295 milljónum sem er metsala
og dreifist sú sala vel á milli kjúklinga-, kjöt og fiskiðnaðar. Aukin fjöldi
stærri verkefna á fjórða ársfjórðungi er í takt við það sem kynnt var með
rekstrarniðurstöðu þriðja ársfjórðungs 2016 þegar sagt var að horfurnar fyrir
stærri verkefni hefðu tekið við sér að nýju eftir laka byrjun á árinu. Fyrir
árið í heild voru mótteknar pantanir  fyrir staðlaða vöru og varahluti sterkar
í öllum iðnuðum. Pantanabókin í árslok 2016 stendur í 350 milljónum evra
saman-borið við 320 milljónir í árslok 2015. 

Pro forma tekjur ársins 2016 námu 983,0 milljónum evra samanborið við 975,8
milljónir árið 2015. Pro forma EBIT* jókst á milli ára og var 143,5 milljónir
evra (14.6%) samanborið við 133,7 milljónir evra 2015 (13.7%). Sjóðstreymi frá
rekstri var sterkt sem leiðir til þess að skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA)
er x2,25 við árslok 2016 samanborið við x2,9 eftir yfirtökuna á MPS í upphafi
ársins. 
Á aðalfundi félagsins fyrir árið 2017, sem haldinn verður 2. mars næstkomandi,
mun stjórn Marel leggja til að hluthafar fái greiddan arð fyrir rekstrarárið
2016 sem nemur 2,14 evru sentum á hlut. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um
15,3 milljónum evra sem samsvarar um 20% af nettó hagnaði ársins. 

Arðgreiðslutillaga þessi er í samræmi við markmið um fjármagnsskipan og
arðgreiðslustefnu félagsins. Stjórn Marel hefur jafnframt veitt stjórnendum
félagsins heimild til að kaupa eigin bréf fyrir allt að 15 milljónir evra að
kaupvirði. Hlutirnir eru ætlaðir sem endurgjald í mögulegum fyrirtækjakaupum. 

Marel gerir ráð fyrir að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Með sterkri
markaðsstöðu og nýsköpun ætlar Marel með innri vexti að vaxa hraðar en 
markaðurinn. Gera má ráð fyrir því að afkoman verði breytileg milli
ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og
tímasetningu stærri verkefna. Að auki hyggst félagið halda áfram að vaxa með
yfirtökum í samræmi við stefnu félagsins. 


Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:
„Árið 2016 var frábært ár fyrir Marel. Sölumet var slegið í fjórða ársfjórðungi
með mótteknum pöntunum upp á 295 milljónir evra og dreifist sú sala vel á milli
kjúklinga-, kjöt og fiskiðnaðar. Viðskiptavinir okkar eru að setja upp
tímamótaverksmiðjur í Asíu, Suður-Ameríku, Norður-Ameríku og Evrópu sem mun
gera þeim kleift að bjóða upp á hágæða matvæli á hagstæðu verði. Önnur
spennandi verkefni voru einnig tryggð í Afríku og Mið-Austurlöndum. 

Við gengum frá kaupunum á MPS í byrjun ársins 2016 og gátum þar með boðið
viðskiptavinum okkar í kjötiðnaði upp á heildarlausnir. Sameining félaganna
gengur vel og hefur þegar skapað aukin verðmæti fyrir viðskiptavini okkar og
hluthafa. Vert er að minna á að við yfirtókum MPS í byrjun árs án þess að gefa
út nýtt hlutafé og hagnaður á hlut jókst um 34% á milli ára. Fjárhagsstaða
félagsins er traust og sjóðsstreymi er sterkt sem leiðir til þess að
skuldahlutfall er x2,25 EBITDA við árslok 2016. 
Til að tryggja áframhaldandi vöxt og virðissköpun höfum við fjárfest vel í
innviðum okkar og kynnt til sögunnar nýstárlegar og snjallar lausnir sem munu
auka skilvirkni og sjálfbærni í matvælaframleiðslu. 

Að lokum vil ég þakka viðskiptavinum okkar og starfsmönnum fyrir viðburðaríkt
og ánægjulegt ár. Saman höldum við áfram að umbylta  matvælaframleiðslu á
heimsvísu.“ 


Hagræðingaraðgerðir og breytingar í framkvæmdastjórn Marel
Frá og með 1. apríl 2017 mun David Wilson taka við af Remko Rosman sem
framkvæmdastjóri Marel Meat. Jesper Hjortshøj mun taka við af David Wilson sem
framkvæmdastjóri fullvinnslu (e. further processing) frá og með 8. febrúar
2017. 

Stjórnendabreytingar í Marel Meat
Frá árinu 2005 hefur MPS meat processing systems verið undir stjórn Remko
Rosman og á þeim tíma hefur félagið vaxið og styrkt samkeppnisstöðu sína. Nú
hefur Remko Rosman ákveðið að takast á við nýjar áskoranir í matvælageiranum,
en þó ekki í samkeppni við Marel. 


Með yfirtöku Marel á MPS í janúar 2016 varð Marel leiðandi á heimsvísu í þróun
og sölu á heildarlausnum fyrir kjötiðnað. Sameining félaganna gengur vel og
árið 2016 var megináhersla lögð á að sameina söluteymi og reikningsskil.
Sameining mun á næstu árum eiga sér stað á öðrum sviðum svo sem framleiðslu,
inn-kaupastýringu og þjónustu. 
David Wilson var framkvæmdastjóri kjötiðnaðar Marel 2012 til 2016 og gegndi
hann mikilvægu hlutverki við yfirtökuna á MPS. David Wilson hefur starfað fyrir
Marel frá árinu 1998 og hefur verið í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu
2013. 

Marel í stakk búið fyrir frekari vöxt í fullvinnslu eftir hagræðingaraðgerðir
Marel er leiðandi á heimsvísu í þróun, sölu og þjónustu á heildarlausnum fyrir
kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnaðinn frá frumvinnslu til áframvinnslu og
fullvinnslu. Á árinu 2016 hefur David Wilson leitt árangursríkar
hagræðingaraðgerðir í starfsemi Marel í fullvinnslu (e. further processing). Á
fjórða ársfjórðungi 2016 endur-skipulagði Marel vöruframboð sitt, hagræddi í
skipuriti og stjórn í starfsemi félagsins í fullvinnslu. Teymi Marel í
fullvinnslu leggur nú áherslu á nýsköpun, þjónustu og vörustjórn á meðan salan
fer að mestu leyti fram í gegnum kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnaði Marel. 

Jesper Hjortshøj mun frá og með 8. febrúar leiða starfsemi Marel í fullvinnslu
sem framkvæmdastjóri og mun hann taka sæti í framkvæmdastjórn Marel. Undir
leiðsögn Jesper Hjortshøj verður nýsköpun og vörustjórn efld til að styrkja
starfsemina og tryggja framtíðarvöxt og verðmætasköpun á markaðinum fyrir
pylsur og tilbúna rétti. Jesper Hjortshøj hefur verið hjá Marel síðan 2006 og
gegnt ýmsum stjórnendastöðum fyrir félagið: framkvæmdastjóri stefnumótunar í
nýsköpun, framkvæmdastjóri vöruseturs og markaðsstjóri. 


Tillaga um arðgreiðslu
Á aðalfundi ársins 2017, sem haldinn verður 2. mars næstkomandi, mun stjórn
Marel leggja til að hluthafar fái greidd 2,14 evru sent í arð á hlut fyrir
rekstrarárið 2016. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla, miðað við núverandi fjölda
útistandandi hluta, nemur um 15,3 milljónum evra sem samsvarar um 20% af nettó
hagnaði ársins. Arðgreiðslutillaga þessi er í samræmi við markmið um
fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu félagsins. 

Verði tillagan samþykkt af hluthöfum félagsins, munu hlutabréf sem skipta um
hendur frá og með 3. mars 2017 (e. ex-date = arðleysisdagur) verða án
arðsréttinda og réttur hluthafa til arðgreiðslu verður miðaður við hlutaskrá
félagsins í lok viðskipta hinn 6. mars 2017 sem yrði arðsréttindadagur (e.
record date). Stjórn leggur til að arðurinn verði greiddur út 23.mars 2017. 

Horfur
Marel gerir ráð fyrir að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Með sterkri
markaðsstöðu og nýsköpun ætlar Marel með innri vexti að vaxa hraðar en 
markaðurinn. Gera má ráð fyrir því að afkoman verði breytileg milli
ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og
tímasetningu stærri verkefna. Að auki hyggst félagið halda áfram að vaxa með
yfirtökum í samræmi við stefnu félagsins. 

Kauphallardagur Marel í Danmörku
Marel heldur kynningarfund með fjárfestum og markaðsaðilum í sýningarhúsi sínu
Progress Point í Kaupmannahöfn þann 2. nóvember 2017. Frekari upplýsingar og
skráning verða kynnt á heimasíðu félagsins www.marel.com á komandi vikum. 


Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta
uppgjörsins en uppgjörstilkynning 
 í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasíðu Marel og má þar m.a. finna
lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins;
http://marel.com/corporate/investor-relations/publications 


Kynningarfundur 9. febrúar 2017
Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 9. febrúar kl.
8:30 í húsnæði þess að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig
netvarpað: www.marel.com/webcast. 


Birtingardagar fyrir reikningsárið 2017 og 2018
 1. ársfjórðungur 2017  3. maí 2017
 2. ársfjórðungur 2017  26. júlí 2017
 3. ársfjórðungur 2017  25. október 2017
 Kauphallardagur Marel  2. nóvember 2017
 1. ársfjórðungur 2018  7. febrúar 2018


Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.
Frekari upplýsingar veitir: Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og
samskipta. Símar: 563-8626 og 853-8626