|
|||
![]() |
|||
2015-10-29 18:19:31 CET 2015-10-29 18:20:20 CET REGLERAD INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirÍslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 3, 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 2,60 ma. kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 4,78 ma. kr. Seldir voru víxlar í flokki ISLA 16 0212 að nafnvirði 760 m.kr. á 6,25% flötum vöxtum (verð 98,3271), í flokki ISLA 16 0415 að nafnvirði 720 m.kr. á 6,49% flötum vöxtum (verð 97,1794) og í flokki ISLA 16 0520 að nafnvirði 1.120 m.kr. á 6,49% flötum vöxtum (verð 96,5871). Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 7,5 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 6. nóvember næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1962609] |
|||
|