|
|||
2007-11-15 17:30:00 CET 2007-11-15 17:30:00 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir- Útboð vegna sölu íbúðabréfa, 9. áfangi 2007Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að efna til útboðs á íbúðabréfum í flokkunum HFF150914, HFF150224, HFF150434 og HFF150644. Íbúðalánasjóður stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 5 milljarðar króna að nafnverði. Íbúðalánasjóður áskilur sér rétt til að hækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Íbúðalánasjóðs við Kaupþing, Glitni, Landsbanka Íslands, Straum - Burðarás, MP fjárfestingabanka og Saga Capital Fjárfestingarbanka hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. Hér með er óskað eftir tilboði í frumsölu á íbúðabréfum gefnum út af Íbúðalánasjóði í samræmi við eftirfarandi lýsingu. Útboðsfjárhæð: 5.000.000.000. (fimm milljarðar króna) Lágmarkstilboð: Samkvæmt aðalmiðlarasamningi dags 14/6/2007 Lánstími: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004 Útgáfudagur: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004 Endurgreiðslur: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004 Nafnvextir: Fastir vextir 3,75% Grunnvísitala: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004 Einingar: 1 kr. rafbréf í hverjum flokki fyrir sig. Þóknun: Íbúðalánasjóður greiðir þóknun 0,15% Verð: Tilboð skal innihalda verð, með og án þóknunar, tilboðsfjárhæð og ávöxtunarkröfu. Fyrirkomulag: “American” uppboðsaðferð þar sem hver og einn tilboðsgjafi sækist eftir sínu verði og niðurstöður útboðs geta því orðið á fleiri en einu verði. Uppgjör sölu: Uppgjör fer fram, föstudaginn 22. nóvember 2007 Tilboð skulu berast til Fjármálasviðs Íbúðalánasjóðs, Höfðaborg, Borgartúni 21, Reykjavík fyrir kl. 9:00, föstudaginn 16. nóvember 2007. Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 09:45 sama dag. Tilboð skal senda Íbúðalánasjóði í lokuðum umslögum. Einnig má senda tilboð í tölvupósti til fjarstyring@ils.is eða með myndsendi í númer 569-6890 á tilboðsdegi ef það er staðfest fyrirfram með símtali við starfsmenn fjámálasviðs Íbúðalánasjóðs í síma 569-6990. |
|||
|