2016-02-09 18:32:35 CET

2016-02-09 18:32:35 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Íslandsbanki hf. lýkur útboði sértryggðra skuldabréfa


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á tveimur verðtryggðum flokkum
sértryggðra skuldabréfa.  Flokkurinn ISLA CBI 22 var boðinn út og seldust þar
640 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,23%. Flokkurinn ISLA CBI 26 var einnig boðinn út
og seldust þar 2.340 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,21%.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3,5 ma. kr. en 85% tilboða var tekið.
Heildarstærð ISLA CBI 22 að loknu útboði verður 4,96 ma. kr. og heildarstærð
ISLA CBI 26 verður 9,58 ma. kr. Heildarupphæð útistandandi sértryggðra
skuldabréfa Íslandsbanka verður að nafnverði 55,84 ma. kr. að loknu útboði.

Stefnt er að töku bréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. febrúar.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[HUG#1984873]