|
|||
2008-05-13 17:48:00 CEST 2008-06-03 16:10:53 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir- Undirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaðiFjármálaráðherra hefur falið Seðlabanka Íslands að gera samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Aðilum að OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi sem eru með eiginfjárstöðu að fjárhæð a.m.k. 5.000 m.kr. um síðustu áramót og hafa nauðsynlegan búnað til þess að taka þátt í útboðum ríkisverðbréfa sem Seðlabanki Íslands heldur fyrir hönd ríkissjóðs, er boðið að gerast aðilar að samningunum. Fyrirhugað er að Seðlabankinn geri samninga við lágmark 5 aðila sem verða svokallaðir aðalmiðlarar. Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í útboðum Seðlabanka Íslands þar sem ríkisverðbréf eru boðin til kaups eða sölu. Einnig fá þeir aðgang að verðbréfalánum ríkisverðbréfa sem Seðlabankinn býður upp á fyrir hönd ríkissjóðs. Aðalmiðlarar annast viðskiptavakt á markflokkum ríkisverðbréfa í OMX, Norrænu kauphöllinni á Íslandi. Aðalmiðlurum er skylt að setja fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. í hvern markflokk ríkisverðbréfa með hliðsjón af hámarksmun sem tilgreindur er í samningunum. Frekari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi sýnishorni af samningi í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Þeir kauphallaraðilar sem hyggjast gerast aðalmiðlarar með ríkisverðbréf mæti til undirritunar samninga klukkan 9:15 föstudaginn 23. maí 2008 í húsakynnum Seðlabanka Íslands að Kalkofnsvegi 1. Frekari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands í síma 569 9600. |
|||
|