|
|||
2009-03-26 11:52:48 CET 2009-03-26 11:53:48 CET REGULATED INFORMATION Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - FyrirtækjafréttirICEQ - samningur við Nýja Kaupþing banka hf. um viðskiptavaktICEQ hefur gert samning við Nýja Kaupþing banka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutdeildarskírteinum sjóðsins fyrir eigin reikning frá og með miðvikudeginum 1. apríl 2009. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutdeildarskírteini sjóðsins í NASDAQ OMX Iceland hf. Nýi Kaupþing banki hf. skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 1000 hlutdeildarskírteini. Bankinn mun leitast við að hafa mun á kauptilboði og innlausnarvirði ICEQ (ENAV15 vísitalan) eins lítinn og mögulegt er, eða að hámarki 1,5%. Bankinn skuld¬bindur sig einnig til þess að endurnýja tilboð sín í hlutdeildarskírteini ICEQ innan 10 mínútna ef úti¬standandi tilboðum er tekið. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem Nýi Kaupþing banki hf. er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera 30 þúsund hlutdeildarskírteini. ICEQ er verðbréfasjóður sem er ætlað að endurspegla eignasamsetningu OMXI6ICAP vísitölunnar sem NASDAQ OMX Iceland hf. reiknar. Ef óskað er frekari upplýsinga hafið samband við: Sigþór Jónsson, sjóðstjóri + 354 444 6954 sigthor.jonsson@rkb.is Pétur Kristinn Guðmarsson, Eigin viðskipti + 354 444 7331 petur.gudmarsson@kaupthing.com 26. mars 2009 Nýi Kaupþing banki hf. Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. |
|||
|