2008-10-10 11:06:19 CEST

2008-10-10 11:07:15 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir

Eimskip selur 50% eignarhlut sinn í Euro Container Line


Hf. Eimskipafélag Íslands hefur selt 50% eignarhlut sinn í norska skipafélaginu
Euro Container Line („ECL“) til Wilson ASA. Wilson og Eimskip hafa átt í
samstarfi um rekstur ECL frá árinu 1999 og hefur félagið verið í jafnri eigu
aðila. Söluverð er ISK 712 milljónir. Bókfærður hagnaður vegna sölunnar er ISK
491 milljón. 

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips: "Salan á ECL er hluti af yfirlýstri stefnu
Eimskips að leggja áherslu á frekari uppbyggingu kjarnastarfsemi félagsins.
Starfsemi ECL tengist ekki siglingakerfi Eimskips og hefur salan því engin
áhrif á þjónustu félagsins. 

Eimskip verður áfram með sterka stöðu í Noregi og á Norður-Atlantshafssvæðinu
undir merkjum Eimskips, Eimskip-CTG, Faroe Ship og Containerships."

Frekari upplýsingar:
Gylfi Sigfússon
Forstjóri Hf. Eimskipafélag Íslands
Sími: 525-7202