|
|||
2010-02-04 20:57:21 CET 2010-02-04 20:58:21 CET REGULATED INFORMATION Marel Food Systems hf. - FyrirtækjafréttirMarel selur Stork Food & Dairy SystemsMarel hefur komist að samkomulagi við hollenska fjárfestingafélagið Nimbus um sölu á Food & Dairy Systems deild Stork Food Systems, að undanskilinni starfsemi hennar á Spáni. Salan á Food & Dairy Systems, einingu sem starfar utan kjarnastarfsemi fyrirtækisins, er hluti af áætlun Marel um að leggja áherslu á arðsemi og innri vöxt í kjarnastarfsemi en hún snýr að vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi, auk frekari vinnslu. Marel er í fararbroddi á heimsvísu, með um 15% markaðshlutdeild, í þróun og sölu á háþróuðum búnaði og kerfum fyrir þessar greinar matvælaiðnaðarins. Bókfært verð eignanna hefur verið fært niður sem veldur tapi upp á 16,4 milljónir evra, aðallega vegna afskrifta viðskiptavildar og endurmetinna eigna, og hefur verið tekið tillit til þess í ársreikningum fyrir 2009. Theo Hoen, forstjóri Marel: „Markmið Marel eftir kaupin á Stork Food Systems í maí 2008 hefur verið að auka áherslu á kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Starfsemi Stork Food & Dairy Systems fellur utan þess ramma og hefur einingin því verið skilgreind sem utan kjarnastarfsemi. Stork Food & Dairy Systems hefur gengið í gegnum velheppnaða endurskilgreiningu og endurnýjun á vörulínum fyrirtækisins, þökk sé starfsfólki og hæfileikaríku stjórnendateymi. Við erum þess fullviss að fyrirtækið verði í góðum höndum hjá Nimbus. Hvað Marel varðar er þetta mjög jákvætt skref í þá átt að auka enn frekar áherslu á kjarnastarfsemi og styrkja stöðu okkar sem markaðsleiðtogi.“ Starfsemi Stork Food & Dairy Systems snýr aðallega að þróun, framleiðslu og markaðssetningu á vinnslu- og fyllingarlínum fyrir mjólkurafurðir, ávaxtasafa og fljótandi matvæli. Árið 2009 stóð einingin (að frátalinni starfsemi hennar á Spáni) fyrir 11% af tekjum Marel, með veltu upp á 61 milljónir evra. Um Marel Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Hjá fyrirtækinu starfa um 3.500 manns um allan heim og starfrækir það skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 60 umboðsmanna og dreifingaraðila. |
|||
|