2022-10-04 21:24:22 CEST

2022-10-04 21:24:22 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki gefur út víkjandi skuldabréf í krónum


Íslandsbanki hefur í dag lokið sölu á tveimur flokkum víkjandi skuldabréfa, sem telja til eiginfjárþáttar 2 (e. Tier 2), fyrir samtals 10.520 m.kr.

Seldir voru 9.020 m.kr. á kröfunni 4,95% í flokknum ISB T2i 33 0417 sem er verðtryggt vaxtagreiðslubréf með ársfjórðungslegum vaxtagreiðslum. Lokagjalddagi er 17. apríl 2033 og innköllunarheimild á pari af hálfu útgefanda 17. apríl 2028 og á öllum vaxtagjalddögum þar á eftir.

Seldir voru 1.500 m.kr. á kröfunni 8,90% í flokknum ISB T2 33 0417 sem er óverðtryggt vaxtagreiðslubréf með ársfjórðungslegum vaxtagreiðslum. Lokagjalddagi er 17. apríl 2033 og innköllunarheimild á pari af hálfu útgefanda 17. apríl 2028 og á öllum vaxtagjalddögum þar á eftir.

Útgáfan verður gefin út undir 2,5 milljarða dollara Euro Medium Term Notes (EMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu EMTN rammans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla: https://www.islandsbanki.is/is/flokkur/bankinn/fjarfestatengsl

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 17. október 2022.

Umsjónaraðili útboðsins var Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.

Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - ir@islandsbanki.is 
Samskiptasvið - pr@islandsbanki.is

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.