|
|||
2022-08-18 17:54:19 CEST 2022-08-18 17:54:23 CEST REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Eimskip: Uppgjör annars ársfjórðungs 2022HELSTU ATRIÐI Í AFKOMU ANNARS ÁRSFJÓRÐUNGS
HELSTU ATRIÐI Í AFKOMU FYRSTU SEX MÁNAÐA ÁRSINS 2022
VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI „Ég er ánægður með afkomu annars ársfjórðungs þar sem við vorum með góða afkomu hjá helstu viðskiptaeiningum félagsins. Rekstrarumhverfið hefur lengi verið mjög krefjandi og síbreytilegt, sérstaklega frá upphafi Covid. Það hefur ítrekað reynt á aðlögunarhæfni okkar og getu til að bregðast við nýjum aðstæðum. Ég er stoltur af okkar reynslumikla og hæfa hópi starfsfólks um allan heim sem hefur aftur og aftur sýnt fram á þrautseigju og útsjónarsemi í rekstri sem og þjónustu við viðskiptavini okkar. Bæði tekjur og gjöld hækka umtalsvert á fjórðungnum, aðallega vegna aukins kostnaðar hjá flutningsbirgjum, hækkunar olíuverðs og mikilla umsvifa. Hlutfall tekna sem eiga uppruna sinn utan Íslands heldur áfram að aukast og er nú um 60% af heildartekjum félagsins. Áætlunarsiglingar halda áfram að skila góðri afkomu þar sem okkar öfluga siglingakerfi spilar lykilhlutverk. Innflutningsmagn til Íslands var mjög hátt á fjórðungnum á meðan útflutningsmagn fá Íslandi minnkaði miðað við síðasta ár meðal annars vegna stríðsins í Úkraínu og minni framleiðslu í laxeldi. Trans-Atlantic þjónustan okkar heldur áfram að styrkjast og er orðin mikilvæg stoð í áætlunarsiglingunum. EBITDA á fjórðungnum nam 44,8 milljónum evra sem er aukning um 51% frá sama ársfjórðungi síðasta árs en rekja má stóran hluta þess til bættrar afkomu af áætlunarsiglingum. Hagnaður nam 24,9 milljónum evra og það er gott að sjá að reksturinn skilar góðu sjóðstreymi frá rekstri sem nam 31,3 milljónum evra á fjórðungnum. Flutningsverð á heimsmarkaði hafa farið lækkandi undanfarið en leiguverð skipa í þeim flokki sem Eimskip hefur í sínum rekstri er enn hátt. Horft fram á veginn eru enn þættir sem valda ójafnvægi og stíflum á alþjóðlegum flutningamörkuðum t.d. afkastageta hjá flutningabílum og aukin verðbólga í hagkerfum heimsins sem geta haft áhrif á alþjóðaviðskipti og eftirspurn. Innflutningsmagn til Íslands er enn mikið og við gerum ráð fyrir að útflutningsmagnið frá Íslandi taki við sér með haustinu. Þá er áframhaldandi gott útlit í Trans-Atlantic flutningum þar sem flutningsgeta er takmarkandi þáttur. Horfur eru því almennt jákvæðar fyrir þriðja ársfjórðung og það sem eftir lifir árs.“ KYNNINGARFUNDUR 19. ÁGÚST 2022 Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti samandreginn árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir fyrri árshelming 2022 á stjórnarfundi þann 18. ágúst 2022. Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 19. ágúst kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð. Fundurinn verður einnig rafrænn og verður honum streymt beint á fjárfestasíðu Eimskips www.eimskip.com/investors. Þar munu Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri og María Björk Einarsdóttir fjármálastjóri kynna árshlutauppgjör félagsins. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður einnig hægt að nálgast á fjárfestasíðunni. FREKARI UPPLÝSINGAR Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 825 3399, netfang: investors@eimskip.com . TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum. Viðhengi
|
|||
|