|
|||
2012-01-20 12:45:00 CET 2012-01-20 12:45:02 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 22 1026Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 22 1026: Alls bárust 12 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.650 m.kr. að nafnverði. 9 tilboðum var tekið fyrir 1.400 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 105,500 (6,52% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24. janúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 25. janúar 2012. |
|||
|