|
|||
![]() |
|||
2017-03-02 17:24:59 CET 2017-03-02 17:24:59 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðsLandsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 170810 og nýjum flokkum, LBANK 170911 og LBANK 180312. Heildartilboð í útboðinu voru 33 talsins og námu samtals 5.800 m. kr. Tólf tilboð að fjárhæð 1.800 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170810 og voru vextir tilboða á bilinu 5,19%-5,40%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 920 m. kr. á 5,20% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,8378. Tólf tilboð að fjárhæð 2.120 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170911 og voru vextir tilboða á bilinu 5,20%-5,40%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.400 m. kr. á 5,28% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,3583. Níu tilboð að fjárhæð 1.880 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180312 og voru vextir tilboða á bilinu 5,40%-5,60%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.740 m. kr. á 5,50% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 94,6907. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. mars 2017. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|