|
|||
![]() |
|||
2016-05-03 18:45:48 CEST 2016-05-03 18:45:48 CEST Marel hf. - Viðskipti stjórnendaMarel hf. - Veiting kaupréttaStjórn Marel hf. ákvað þann 3. maí 2016 að veita framkvæmdastjórn félagsins kauprétti að allt að 2,2 milljónum hluta í félaginu. Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á síðasta aðalfundi Marel í mars 2016. Allir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel fá sama magn kauprétta eða 180 þúsund hluti að forstjóra undanskildum en hann fær 360 þúsund hluti. Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi: -- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 1,795 á hlut [1] sem hækkar árlega um 2% (e. hurdle rate). Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða greiddar frá útgáfudegi kaupréttanna. -- Kaupréttirnir verða virkir í þrennu lagi, fyrst verða 60% kaupréttanna virk í apríl 2019, síðan 20% í apríl 2020 og loks 20% í apríl 2021. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti tvisvar á ári, í apríl og október eftir birtingu ársfjórðungsuppgjöra. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2022, þegar samningarnir renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma. -- Kaupréttarhafar þurfa að kaupa hlutabréf í Marel fyrir u.þ.b. 45% af hagnaði, fyrir skatta og kostnað, af innleystum kaupréttum og halda þeim bréfum til starfsloka hjá Marel. Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú alls 11,5 milljónum, sem nemur um 1,6% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu fimm árum er áætlaður um 660 þúsundir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes. Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel: Nafn Staða Nýr Fyrri og Hlutafjár Hlutafjáreign kaupré ónýttur eign fjárhagslega ttur kaupréttur innherja tengdra aðila Árni Forstjóri 360.000 0 64.634 67.235 Oddur Þórðars on Linda Fjármálastjóri 180.000 545.000 62.500 0 Jónsdót tir Anton de Yfirmaður 180.000 740.000 0 0 Weerd kjúklingaiðnaðar Remko Yfirmaður 180.000 0 0 5.630.718 Rosman kjötiðnaðar Sigurður Yfirmaður 180.000 425.000 0 0 Ólason fiskiðnaðar David Yfirmaður frekari 180.000 635.000 0 0 Wilson vinnslu Árni Yfirmaður 180.000 425.000 0 100.000 Sigurðs stefnumótunar og son þróunar Davíð Yfirmaður 180.000 485.000 75.000 0 Freyr mannauðsmála Oddsson Paul van Yfirmaður 180.000 485.000 0 0 Warmerd alþjóðlegrar am framleiðslu- og aðfangastýringar Pétur Yfirmaður viðskipta- 180.000 740.000 219.430 0 Guðjóns og sölusviðs son Viðar Yfirmaður 180.000 545.000 0 0 Erlings alþjóðlegrar son nýsköpunar og þróunar [1] Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ OMX Iceland hf. þann 3. maí 2016, þ.e. ISK 251,50 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands sama dag: EUR/ISK: 140,12 |
|||
|