2009-04-14 15:11:23 CEST

2009-04-14 15:12:30 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir

- Tilkynning varðandi skuldbindingar Sparisjóðs Mýrasýslu


Þann 27. mars síðastliðinn samþykktu stærstu lánardrottnar Sparisjóðs Mýrasýslu
(„SPM“) tillögu að fjárhagslegri endurskipulagningu sjóðsins samanber
tilkynningu til Kauphallar 6. apríl 2009. Samhliða því voru eignir SPM seldar
til Nýja Kaupþings banka hf. („Nýi Kaupþing“) sem mun greiða fyrir eignirnar
með skuldabréfum og hlutabréfum útgefnum af Nýja Kaupþingi. 

SPM er útgefandi af nokkrum skuldabréfaflokkum sem skráðir eru í Kauphöll
Íslands (Nasdaq OMX). Í ljósi stöðunnar mun SPM ekki greiða afborganir né vexti
af þeim flokkum sem til gjalddaga kunna að koma á því tímabili sem
áframhaldandi viðræður við innlenda sem erlenda lánardrottna um uppgjör krafna
standa yfir, þ.m.t. á flokki SPM 05 01 sem er á gjalddaga þann 15. apríl 2009.