2016-10-31 11:01:11 CET

2016-10-31 11:01:11 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf. : Kaup Landsbankans á eigin hlutum á öðru endurkaupatímabili


Eins  og  fram  kemur  í  tilkynningu  Landsbankans frá 15. september 2016 hefur
bankaráð  Landsbankans  ákveðið  að  nýta  heimild  til  kaupa  á eigin hlutum í
bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans 14. apríl 2016. Kaupin, sem fara fram
á  þremur endurkaupatímabilum, munu nema  að hámarki samtals 480 milljónum hluta
eða sem nemur 2% af útgefnu hlutafé.



Þann  30. september 2016 birti Landsbankinn tilkynningu um kaup á eigin hlutum á
fyrsta endurkaupatímabilinu sem stóð yfir frá 19. september 2016 til og með 30.
september 2016.



Annað endurkaupatímabil stendur yfir frá 31. október 2016 til og með 9. desember
2016.



Þeir  hluthafar sem  ákveða að  nýta sér  boð Landsbankans  um að kaupa hluti af
hluthöfum  á  öðru  endurkaupatímabili  skulu  senda bankanum tilkynningu þar að
lútandi  og er  eyðublað fyrir  tilkynninguna aðgengilegt  á vef  bankans. Þá má
finna  á vef  bankans leiðbeiningar  til hluthafa  sem vilja  selja hluti á öðru
endurkaupatímabili. Hluthöfum verður ekki sent bréf vegna boðs bankans um kaup á
hlutum á öðru endurkaupatímabili.



Tilkynningar  verða  afgreiddar  í  þeirri  röð  sem þær berast bankanum þar til
framangreindu  hámarki  (480  milljónir  hluta)  verður náð. Verði hámarkinu náð
verða frekari tilkynningar því ekki afgreiddar.



Samkvæmt  árshlutauppgjöri Landsbankans  fyrir fyrstu  níu mánuði ársins 2016 er
eigið  fé sem tilheyrir hluthöfum bankans 251.106.010.127 krónur og útistandandi
hlutir  23.661.764.751. Í samræmi við framangreint býðst Landsbankinn því til að
kaupa hvern hlut á genginu 10,6123 á öðru endurkaupatímabili.



Að  loknu  öðru  endurkaupatímabili  mun  Landsbankinn  upplýsa um heildarfjölda
seldra  hluta og hvort bankastjóri eða  framkvæmdastjórar hjá bankanum hafi selt
hluti í bankanum.



Gert  er ráð fyrir að þriðja endurkaupatímabil verði frá 13. febrúar 2017 til og
með 24. febrúar 2017.



Nánari  upplýsingar  veitir  Rúnar  Pálmason,  upplýsingafulltrúi  Landsbankans.
Tölvupóstfangið er runar.palmason@landsbankinn.is.


[]