2013-08-08 17:31:00 CEST

2013-08-08 17:31:03 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 13 1115 OG RIKV 14 0217


Þriðjudaginn 13. ágúst kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 13 1115 og RIKV 14 0217 sem eru með gjalddaga 15.
nóvember 2013 og 17. febrúar 2014. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagur 15. ágúst 2013.

Sótt verður um að RIKV 14 0217 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á
Íslandi föstudaginn 16. ágúst 2013.