2010-08-26 18:27:31 CEST

2010-08-26 18:28:29 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Marel hf. - Fyrirtækjafréttir

Marel hf. semur um viðskiptavakt við MP banka hf.


Marel hf. hefur gert samning við MP banka hf. um viðskiptavakt á útgefnum
hlutabréfum félagsins. 

Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins
á NASDAQ OMX Iceland. MP banki skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup-
og sölutilboð á NASDAQ OMX Iceland í hlutabréf Marel hf. (MARL) að lágmarki
100.000 kr. að nafnvirði á gengi sem MP banki ákveður í hvert skipti.
Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá
síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag
hvern sem MP banki er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 700.000
að nafnverði. 

Samningurinn tekur gildi í dag, er ótímabundinn en uppsegjanlegur með eins
mánaðar fyrirvara. 

Orðið hefur að samkomulagi við Íslandsbanka að viðskiptavakt bankans falli
niður frá sama tíma og samningur við MP banka tekur gildi.