2016-12-29 17:10:57 CET

2016-12-29 17:10:57 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs nóvember 2016


Aukin útlán milli ára

Útlán það sem af er ári námu 11,8 milljörðum króna í lok nóvember samanborið
við 5,5 milljarða fyrir sama tímabil árið 2015. Íbúðalánasjóður hefur þegar
lánað 6 milljörðum krónum meira en heildarútlán ársins 2015. Umfang útlána
sjóðsins er sambærilegt við tölur ársins 2013 en þá voru útlán frá janúar til
nóvember 12,6 milljarðar króna. 

Íbúðum í eigu sjóðsins fækkar hratt

Íbúðir í eigu sjóðsins voru í lok nóvember 698 talsins. Hefur þeim fækkað um
650 frá því í ársbyrjun þegar fjöldinn var 1348. Sala íbúða gengur vel og er
samkvæmt áætlun. Seld hefur verið 851 eign og  jafnframt hafa verið samþykkt
kauptilboð í 77 eignir til viðbótar. Ríflega þriðjungur eignanna sem var í eigu
sjóðsins í lok nóvember eru í almennri sölumeðferð og helmingur eða 378 eignir
eru leigðar út. Með sölu eigna gefst tækifæri til að ávaxta fjármuni betur með
tilliti til fjárfestingarheimilda og styrkja með því hreinan vaxtamun sjóðsins. 

Frekari upplýsingar um stöðu lánasafns og markaðsupplýsingar tengdar útgáfum
sjóðsins má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu fyrir nóvember.