|
|||
2010-08-18 10:44:51 CEST 2010-08-18 10:45:48 CEST REGULATED INFORMATION HS Orka hf - FyrirtækjafréttirFormlega gengið frá kaupum Magma á HS Orku hf.Gengið var formlega frá kaupum Magma Energy á ríflega 38% hlut Geysis Green Energy í HS Orku hf. í dag. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi,segir að ekki hafi verið hægt að bíða lengur eftir nefnd stjórnvalda um kaupin án þess að baka fyrirtækinu skaðabótaábyrgð gagnvart seljanda. Magma á nú að fullu ríflega 84% hlut í HS Orku. |
|||
|